A A A

Fiskeldi

Undanfarin ár hefur framleiðsla sjávarafurða í auknum mæli komið úr eldisfiski og margt bendir til að sú þróun muni halda áfram. Lítið er framleitt af eldisþorski í dag og er framleiðsla seiðanna helsti flöskuhálsinn. Miklum fjármunum er varið erlendis í rannsóknir og þróunarvinnu í framleiðslu þorskseiða, en ætla má að hægt verið að yfirfæra tækni og þekkingu á sjókvíaeldi laxfiska yfir á matfiskeldi þorsks í framtíðinni. Þorskeldisverkefni H-G hf. eru langtímaverkefni sem vinna þarf markvisst og örugglega.

 

H-G hf. er með tvö megin verkefni í gangi:

 

Annað snýr að áframeldi á villtum þorski. Eins til tveggja kg þorskur er veiddur og færður lifandi í sjókvíar og alinn þar í nokkra mánuði og síðan slátrað eftir að hafa meira en tvöfaldað þyngd sína í áframeldinu.

 

Hitt verkefnið er tilraunaeldi á seiðum (2-10 g) sem alinn eru upp í sláturhæfan fisk. Seiðin eru bæði klakin úr hrogni í seiðaeldisstöð (stríðeldi) og alin áfram í sjókvíum til slátrunar eða veidd (strjáleldi) 2-5 g að þyngd og alin í seiðaeldisstöð og síðan áfram í sjókvíum til slátrunar.

 

Enn er mikil vinna eftir í kynbótum, bólusetningu og fleiri þáttum er snúa að þorskeldi, en framleiðsluferlið gæti orðið eftirfarandi:

- Hrygning - frjóvgun hrogna
- Klak
- Startfóðrun: lifandi fóður þurrfóður
- Stríðeldi seiða í eldiskerjum
- Seiði, 100 gr + færð í sjóvkíar
- Áframeldi í sjókvíum
- Slátrun og pökkun

Júlíus G. ÍS-270
Páll Pálsson ÍS-102
Stefnir ÍS-28
Örn ÍS-31
Vefumsjón