A A A
Á myndinni eru vestfirðingarnir f. h. Gunnlaugur Finnbogason af Arnari, Ómar Ellertsson og Gunnar Arnórsson af Júlíusi, Víðir Jónsson af Kleifaberginu og Jón Jóhannesson frá Iclandic USA.
Á myndinni eru vestfirðingarnir f. h. Gunnlaugur Finnbogason af Arnari, Ómar Ellertsson og Gunnar Arnórsson af Júlíusi, Víðir Jónsson af Kleifaberginu og Jón Jóhannesson frá Iclandic USA.

Á sjófrystifundi SH sem haldin var í Reykjavík 30. desember síðastliðinn var áhöfninni á Júlíusi Geirmundssyni veitt tvenn verðlaun, frá Icelandic UK og Iclandic USA. Verðlaunin voru veitt fyrir góðan árangur í vöruvöndun og framleiðslumálum á síðasta ári. Bretlands og Bandaríkjamarkaðir eru mikilvægustu markaðir fyrir þorsk og ýsuafurðir skipsins. Verðlaunin eru ánægjuleg viðurkenning fyir áhöfn og útgerð og jafnframt hvatning í byrjun nýs árs.

Júlíus G. ÍS-270
Páll Pálsson ÍS-102
Stefnir ÍS-28
Örn ÍS-31
Vefumsjón