miðvikudagurinn 19. desember 2001
Gæðaverðlaun Coldwater Seafood Corp. í Bandaríkjunum
Verðlaunin eru veglegur skjöldur sem veittur er fyrir góðan stuðning og vöruvöndun við framleiðslu á afurðum fyrir Coldwater árið 2001. Af landfrystum afurðum H-G hf. er Bandaríkjamarkaður mikilvægasti markaður fyrirtækisins og því ánægjuleg viðurkenning fyrir starfsmenn bolfiksvinnslunnar sem lagt hafa sig fram við framleiðslu afurðu af mjög jöfnum og góðum gæðum.





