Tími í verkfalli nýttur til menntunar og menningar
þriðjudagurinn 14. febrúar 2017

Eftir að starfsfólk botnfiskvinnslu Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. lauk fiskvinnslunámskeiðum fyrir áramót bauð  fyrirtækið starfsfólki sínu að sitja íslenskunámskeið í verkfallinu. Í síðustu viku luku 30 starfsmenn 30 stunda námi i íslensku á vegum Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða. Haldið var upp á árangurinn með thailensku matarþema í gær þar sem nokkrir starfsmenn af thailenskum uppruna elduðu og kynntu samstarfsfólki sínu thailenska matargerð. Þeir starfsmenn sem höfðu áhuga á að bæta íslenskuþekkingu sína ennfrekar hófu nýtt íslenskunámskeið í morgun.

Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. er fjölmenningarlegur vinnustaður og með íslenskunámskeiði er fyritækið að stuðla að bættri íslenskufærni starfsmanna sinna og auðvelda þar með aðlögun að bæði vinnustaðnum og samfélaginu.

Til baka