Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. hefur undirritað samning um smíði á nýju frystiskipi við skipasmíðastöðina Astilleros Ria de Vigo í Vigo á Spáni. Skipið kemur í stað Júlíusar Geirmundssonar ÍS-270 sem verður 35 ára á þessu ári.

Skipið er hannað  af Verkfræðistofunni Skipasýn ehf. í samvinnu við útgerðina og verður 67,1 metri á lengd og 16 metra breitt, með 3.600 kW MAN-aðalvél. Áætlaður afhendingartími skipsins er síðari hluta árs 2026.

Nýja skipið verður hagkvæmt í rekstri og búið öllum nýjasta tækjabúnaði sem völ er á. Orkunýtni verður mjög góð og byggir á stórri hæggengri skrúfu svipað og er á öðrum togara fyrirtækisins, Páli Pálssyni ÍS-102 og reynst hefur afar vel undanfarin sex ár.

Við hönnun skipsins hefur verið lögð áhersla á góðan aðbúnað og vinnuaðstöðu áhafnar skipsins. Þannig verða öll svefnrými skipverja fyrir einn mann með tilheyrandi aðstöðu. Til að létta störf áhafnarinnar og auka afköst byggir vinnslukerfi skipsins að miklu leyti á sjálfvirkni og verður það m.a. búið flokkurum, sjálfvirkum frystum, afurðahóteli sem flokkar afurðir eftir tegundum og stærðum og búnaði sem pakkar afurðum á bretti og flytur niður í lestar. Einnig verður búnaður til að vinna lýsi úr aukaafurðum um borð í skipinu.

Hraðfrystihusið-Gunnvör hf. gerir út 2 togara, er með fiskvinnslu í Hnífsdal og niðursuðuverksmiðju í Súðavík. Auk þess stundar dótturfyrirtæki félagsins, Háafell ehf. laxeldi í Ísafjarðardjúpi og vinnur núna að stækkun seiðaeldisstöðvar sinnar á Nauteyri við Ísafjarðardjúp.

Til baka