Veiðar 2

Veiðislóð

Mikilvægasta fisktegund skipa fyrirtækisins er þorskur og ein gjöfulustu þorskmið við norðanvert Atlantshaf eru út af Vestfjörðum. Það er því engin tilviljun að þorskurinn sé burðarásinn í rekstrinum því stutt er að sækja á þessi gjöfulu mið á hafsvæðinu úti fyrir Vestfjörðum. Sérstaklega á þetta við um ísfiskskipin sem landa reglulega ferskum afla eftir stuttar veiðiferðir og tryggir þar með bolfiskvinnslum fyrirtækisins reglulegu flæði hráefnis, allt árið um kring. Þó svo þorskurinn sé mikilvægasta tegundin og er um helmingur aflaheimilda fyrirtækisins eru aðrar tegundir eigi að síður mjög mikilvægar. Ýsa, ufsi, skarkoli,  steinbítur og gullkarfi eru einnig mikið veiddar á Vestfjarðamiðum og grálúða enn dýpra vestur og norður af Vestfjörðum.  Makríll og síld eru þær tegundir sem veiddar eru fjær Vestfjörðum eða mest á  veiðislóðum fyrir vestan og austan land og eru eingöngu stundaðar af frystiskipi fyrirtækisins. Þrátt fyrir framangreint þarf einnig að sækja framangreindar tegundir á önnur mið, fjærri  Vestfjörðum, séu veður, fiskigöngur og aðrar aðstæður þesslegar. Innfjarðarrækja er veidd af smærri bátum fyrirtækisins inn allt Ísafjarðardjúpi.

Það eru ýmsir kostir samfara því að stutt er að sækja á gjöful mið á djúpu vatni með öflugum togskipum. Bæði fer minni orka og tími í siglingar á og af veiðislóð sem leiðir til minna sótspors og unnt er að tryggja jafnara flæði ísaðs hráefnis í landvinnslur í heimahöfn skipanna sem aftur auðveldar reglulegar afhendingar kældra fiskafurða til viðskiptavina erlendis, bæði í Evrópu og Ameríku.